
Viltu njóta útiveru í fallegu umhverfi? Viltu hafa barnið með þér meðan þú púlar? Viltu fá hvatningu og aðahald?
Komdu þá til okkar í Kerrupúl!
Kerrupúl er útivistar-og líkamsræktarnámskeið fyrir foreldra og börn þeirra í vögnum eða kerrum. Kerrupúl er alhliða æfingakerfi byggt á þol og styrktarþjálfun, fyrir mæður sem vilja rækta líkama og sál eftir barnsburð. Kerrupúlstímar eru byggðir upp á upphitun, kraftgöngu og stöðvaþjálfun, lögð er áhersla á þá vöðvahópa sem þarfnast styrkingar eftir barnsburð. Barnið fær að koma með og njóta útiverunnar og samverunnar við móður og önnur börn.
Ódýrt, einfalt og við allra hæfi!
Skráning á: kerrupul@kerrupul.is allar nánari upplýsingar er að finna á kerrupúls tengli.
Hlökkum til að sjá ykkur allar og krílin ykkar!

Sjáið okkur í mbl fréttum!! http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/03/01/pula_med_afkvaemin_i_kerrum/

