Reynslusögur
Þegar ég var ólétt af mínu öðru barni síðastliðinn vetur, þjáðist ég af mikilli grindargliðnun. Hún gerði það að verkum að öll verk urðu erfiðari, ég átti erfitt um gang og meðgangan því öll erfiðari fyrir vikið. Þegar stelpan mín kemur svo í heiminn 7. Júlí 2009 þá hverfur grindargliðnunin sem betur nánast alveg og ég er öll hin hressasta. Þegar Máney Petra er orðin 4. vikna sé ég myndbrot um kerrupúlið í kastljósinu og hringi samstundis í Melkorku og skrái okkur mæðgur á námskeið. Ég gæti ekki verið ánægðari með námskeiðin enda er ég ennþá í Kerrupúlinu og mæti í hvernig veðri sem er og arka um laugardalinn með frábærum kennurum, svo ég tali nú ekki um konurnar sem eru með mér! Ef veður er vont þá klæðir maður sig bara betur. Í dag get ég ekki hugsað mér að fara inn á líkamsræktarstöð með krílið mitt, heldur nýt þess að vera úti í náttúrunni, anda að mér fersku lofti og púla svo um munar. Kerrupúlið hefur gefið mér aukna orku, ég hef styrkst til muna, fáein kíló hafa runnið af mér og síðast en ekki síst þá hef ég komist að því að útivist á frábærlega við mig. Ég ætla að halda ótrauð áfram og mæta þangað til fæðingarorlofið er búið og hvet allar nýbakaðar mæður að prófa! Sigríður Pétursdóttir, 28 ára. Börn: Fanney Sif 11 ára (stjúpdóttir mín), Helga Lind 3 ára & Máney Petra 5 mánaða.
Ég var að leita að einhverri líkamsrækt sem gæti hentað mér eftir barnsfæðingu þegar ég rakst á auglýsingu um Kerrupúlið. Mér fannst þetta snilldar hugmynd, fara bara með krílið með mér í Laugardalinn og púla. Kerrupúlið er byggt upp með frábærum þol- og styrktaræfingum sem henta öllum, hvernig sem formið er. Ég hef þurft að glíma við mikla sorg og gleði á stuttum tíma og hef verið mjög meðvituð um mína andlegu heilsu eins og þá líkamlegu. Ég þakka því að ég dreif mig í kerrupúlið að ég hef átt auðveldar með að takast á við daglegt líf og getað sinnt mér og mínum. Þjálfunin, útiveran með barninu og frábær félagsskapur er það besta sem ég gat fengið. Það hefur líka komið skemmtilega á óvart er alltaf gott veður í Laugardalnum
-Þriggja barna móðir í Reykjavík
Ég skráði mig í Kerrupúl því mér fannst það tilvalin leið til að koma mér í form eftir barneign. Það er ekki hægt að biðja um það betra, Kerrupúl gerir manni kleift að hreyfa sig en á sama tíma njóta samverunnar með barninu sínu, anda að sér fersku lofti og kynnast frábæru fólki. Kerrupúlið brýtur upp hversdagsleikann og er svo tilvalin leið til að rækta líkama og sál. -Aldís Magnúsdóttir
Ég fór í Kerrupúl vegna þess að mig langaði að fá einhverja tilbreytingu frá því að vera í hefðbundnum göngutúrum. Mig langaði líka að komast í eitthvað form og auka þolið hjá mér. Svo spillir ekki fyrir að geta verið úti í náttúrunni í Laugardalnum og púlað þar enda þoli ég ekki vera inni í líkamsræktarstöðvum og þar er þessi endalausa svitalykt! Síðan er líka annað mál með Kerrupúlið þar get ég verið úti með dóttur mína og hún sefur í vagninum á meðan ég er að púla sem mér finnst algjör snilld. Ég hef ekki áhuga á því að setja dóttur mína í pössun á einhverri líkamsræktarstöð þar sem aðviðkomandi þekkir ekki barnið mitt. Mér datt ekki í hug að það væri hægt að gera svona margar æfingar með vagninn eins og þær eru endalaust duglegar að koma með nýtt prógramm í hverjum tíma. Kerrupúl hefur tvímælalaust aukið þolið hjá mér, aukið styrk í líkamanum hjá mér. Það sem er gaman við Kerrupúlið er að maður er að hitta aðrar konur í sömu stöðu og maður sjálfur, í staðinn fyrir að vera einn út að ganga með vagninn er maður í hóp og með félagsskap af öðrum konum. Kerrupúl kemur manni af stað á morgnana og þegar tíminn er búinn er maður mjög ánægður með að hafa mætt í tímann enda er maður endurnærður eftir hvern tíma. Ég er miklu hressari á daginn eftir að ég byrjaði í Kerrupúli og ég er ekki eins þreytt á kvöldin. Kerrupúlið er mjög skemmtilegt í alla staði enda er fjölbreytnin mikil. Ég er allavega reynslunni ríkari eftir minn tíma í Kerrupúli og tvímælalaust á ég eftir að fara aftur með næsta barn. -Móðir í Reykjavík
Ég fór í Kerrupúl þar sem mér fannst spennandi að geta verið utandyra í leikfimi í frísku lofti meðan barnið svaf morgunlúrinn sinn í vagninum. Ég er búin að fara á tvö námskeið og þetta hefur verið alveg frábært! Tímarnir eru skemmtilegir og mjög fjölbreyttir, enginn einn tími eins. Maður getur líka stýrt því svolítið sjálfur hversu hraðir og erfiðir tímarnir eru. Veðrið hefur bara einu sinni verið til trafala á þessum tveimur mánuðum svo það er engin hindrun! Maður er oft latur á morgnana þegar maður er einn heima með barn en þegar maður er kominn á staðinn í Kerrupúl er maður svo lifandi feginn og ánægður og dagurinn verður bara miklu betri. -Móðir 4.mánaða gamallar stúlku í Reykjavík
Um leið og ég frétti af Kerrupúli var ég fljót að skrá mig, vissi að þetta væri rétta hreyfingin fyrir mig. Þetta eru alveg snilldar tímar, tekið vel á því,fjölbreyttar og góðar æfingar, skemmtilegir kennarar og síðast en ekki síst get haft barnið með mér. Kerrupúl hefur hjálpað mér að ná þolinu upp á alveg ótrúlega skömmum tíma, létt lundina við alla þessa útiveru og maður drífur sig út að ganga í hvaða veðri sem er og maður kemst að því að það er aldrei eins slæmt og maður hélt. Ég mæli hiklaust með kerrupúli fyrir allar nýbakaðar mæður. -Móðir í Reykjavík

