Kennararnir

Námskeiðin eru í umsjón:

juli09 132 Melkorka Árný Kvaran
lauk íþróttakennaraprófi árið 1999 og matvælafræði frá HÍ árið 2005.
Hún er mikil áhugamanneskja um heilsu og hreyfingu. Hún hefur starfað sem einkaþjálfari og
þolfimikennari, ásamt því að vera með næringarráðgjöf og fjölmarga fyrirlestra umhollt mataræði og heilbrigða lífshætti.
Melkorka á þrjú börn fædd 2003 og 2007.


HallaHalla Björg Lárusdóttir
lauk prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2000, og námi í ljósmóðurfræði frá sama skóla árið 2003. Hún hefur starfað á ýmsum deildum LSH og á fæðingardeild í Connecticut í Bandaríkjunum, en er nú starfandi ljósmóðir á Fæðingardeild Landspítalans.  Hún er mikil áhugamanneskja um heilbrigði og holla lífshætti og hefur mikinn áhuga á matargerð og hreyfingu. Hún hefur stundað hlaup frá 16 ára aldri og hefur mikla ánægju af.
Halla á fjögur börn fædd á árunum 1995, 2000, 2003 og 2008.

Til aðstoðar eru:


agnes

Agnes Ósk Sigmundardóttir:
Er hamingjusamlega heimavinnandi þriggja stráka mamma. Hún er með B.A. gráðu í félags- og sálarfræði og M.Sc. í viðskiptafræði. Hefur m.a. starfað við markaðsmál og kennt leikfimi hjá Dansrækt JSB í 10 ár.


JoninaJónína Sigrún Björnsdóttir
Útskrifaðist frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni 1999. Kennir við Varmárskóla í Mosfellsbæ, bekkjarkennslu, íþróttir og sund. Hún kláraði Nuddskóla Íslands 1997. Jónína hefur mjög gaman af allri útivist og hreyfingu. Æfði skíði og fótbolta í mörg ár.
Hún á þrjú börn fædd 2000, 2007 og 2009.

Helga Björk Árnadóttir

Stundar nám í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík. Hún starfar sem skíðaþjálfari hjá Skíðadeild Ármanns og hefur mikinn áhuga á útivist og hlaupum. Helga Björk á 3 ára gamlan son.