LEIKJAPÚL
Leikjapúl er enn ein frábæra nýjungin hjá okkur sem hefst í byrjun maí. Leikjapúl er leikjanámskeið fyrir foreldra og börn þeirra á skólaaldri. Markmiðið er að auka samverustundir foreldra og barna þeirra, og auka þannig leikgleðina og hreyfinguna hjá foreldrum og börnum. Fátt er skemmtilegra en að leika sér með barninu sínu úti í góðu veðri, rifja upp gömlu góðu leikina sem voru vinsælir þegar við vorum lítil, læra nokkra nýja leiki og finna barnið í sjálfum sér í leiðinni.
Sendið fyrirspurnir á kerrupul@kerrupul.is

