Kerrupúl

DSC_0616

KERRUPÚL er ekki bara göngutúr úti í náttúrunni. Kerrupúl er alhliða æfingakerfi byggt á þol og styrktarþjálfun, fyrir mæður sem vilja rækta líkama og sál eftir barnsburð. Barnið fær að koma með og njóta útiverunnar og samverunnar við móður og önnur börn.

Sem mæður sjálfar, vitum við hvað það er mikilvægt að vera í jafnvægi um leið og við beinum athyglinni að því að rækta líkama og sál.  Stuðningur og samband við aðrar mæður sem eru eins þenkjandi og með svipaðar áherslur í lífinu, er ómetanlegur.

DSC_0654

Kerrupúlstímar eru byggðir upp á upphitun, kraftgöngu og stöðvaþjálfun. Ef
barnið þitt verður óvært, sýnum við ykkur æfingar sem hægt er að gera á meðan barnið er róað.

Hvað þarf ég til að mæta í kerrupúlstíma?
* Þegar þú mætir í kerrupúlstíma skalt þú að hafa með þér vatnsbrúsa, því það er mjög mikilvægt að vökva sig vel, sérstaklega fyrir mjólkandi mæður!
* Vertu í góðum skóm, hlaupaskór eða góðir gönguskór eru besti kosturinn, alveg flatbotna íþróttaskór, sem eru ætlaðir til dags daglegrar nota en ekki til íþróttaiðkunar, geta verið varasamir og aukið hættu á að þú misstígir þig og meiðir á þér ökklann.
* Góður íþróttabrjóstahaldari er  LÍFSNAUÐSYNLEGUR, gjafahaldararnir halda því miður oftast ekki nógu vel þegar verið er að hreyfa sig af krafti eins og við gerum í kerrupúlinu!
* Gott er að klæða sig í nokkur lög af fötum því í íslenskri veðráttu er gott að geta fækkað lögunum eftri því sem manni hitnar í púlinu, og bætt síðan aftur á sig þegar við stoppum til að teygja.